Sunday, January 18, 2009

og það er beðið

já það verður að segjast að við erum aðeins farin að bíða eftir blessuðu barninu :) en ég er þó ekki sett fyrr en morgun 19. janúar samkvæmt sónar. Hélt bara að þetta kæmi örlítið fyrr eins og Freyja Sif gerði en vonandi verða þetta ekki tvær vikur fram yfir eins og með Óðinn Braga!! Veit ekki hvert Palli verður farinn þá!! Hann er ekkert skemalagður í vinnunni út af ástandinu og er því bara heima að bíða með mér :) Svo skammar hann mig á hverjum degi fyrir að vera ekki búin að fæða þetta barn en hvað get ég gert?? en þetta er nú allt í góðu gríni og tíminn líður svo sem ágætlega áfram. Svo er líka ælupest í húsinu sem Óðinn Bragi pikkaði upp í leikskólanum fyrir helgina, svo það er ágætt að klára þann pakka af áður en litla krílið mætir :)

En já að öðru leiti erum við bara hress og kát :)

Kveð að sinni
 
Hej då 
kornflex


svoana kveður dóttir mín á leikskólanum. á íslensku segir maður bless bless klukkan sex kornflex. Þetta hlýtur að ríma og hljóma jafnvel á sænsku eða hvað??

Early pearly

3 comments:

Logi Helgu said...

Fer Palli ekki bara niðrí stúdíó?

Baráttukveðjur,

Bless,
kornflex

Anonymous said...

vá hvað er gaman að skoða myndirnar. Ofsalega eru þið ríkir foreldrar.
Kv, Inga Jóns.

Steinrún Ótta said...

Til hamingju með litluna!

Mikið er hópurinn ykkar orðinn stór og fríður.

Kveðja,
Steinrún (Gugga-systir)