Freyja Sif sat í kerrunni og var ekkert sérstaklega hrifin af að fá þessi litlu snjókorn í andlitið en það var mjög nett og létt snjókoma á leiðinni. Hún jafnaði sig nú fljótt á þessu og var alsæl að koma í leikskólann.
Ég fékk mér svo stuttan göngutúr í hverfinu og er svo að spá í að fara í heitt bað eða gera einhverjar æfingar til að koma þessu barni af stað úr bumbunni!!! ;)
Kveðjum að sinni
Erla og bumban
9 comments:
Það verður gaman að sjá hvort þið breytið eitthvað út af reglunni með kyn ;)
Kveðjur úr rigningunni í Reykjavík.
Nákvæmlega, mjööög spennandi! Ég held samt að það verði brugðið frá reglunni og spái dreng!
Ég var að spá í hvort ég fengi ekki bara Óðinn Braga til að taka fermingarmyndirnar.Flottar myndir hjá honum. kveðja úr firðinum fagra. Kveðja Billa.
Ég myndi nota líka stigana heima hjá þér... og kannski Palli geti eitthvað hjálpað til? ;o) ehemm
Gaman að heyra í ykkur á skype í gær...planið um að gera þetta eftir matinn í gær tókst sem sagt ekki? 11. jan hefði nú orðið fínn dagur ;-) kv. Árný frænka
12. janúar :) helgin "fræga" búin og enginn jói.
hann kemur á endanum.
Koma svo Palli!! :oP
(GEISP!)
ha?
hvað?
á ég að gera eitthvað?
"Knúsa" konuna ;)
Post a Comment