Wednesday, November 26, 2008

Fartalvan dó!!!

Já nú sit ég inn á kontor og rita hér nokkur orð. Ég sem hélt að Eplatölvur væru ódauðlegar en viti menn, skvísan bara gaf upp öndina!!! Ekki skemmtilegt að þurfa að sitja hér í þessu annars ágæta herbergi en stofan, kjallarinn eða eldhúsið er nú huggulegra með sjónvarpið eða eitthvað annað í gangi í leiðinni!!! En við höfum allavega tölvu, (hún er bara ekki færanleg), svo maður ætti nú kannski ekki að vera að kvarta neitt!!!

Annars er allt ágætt í fréttum af okkur fyrir utan heilsufarið á liðinu. Um leið og Óðinn Bragi hristi af sér kvefið þá tókum við hin þrjú við. Palli og Freyja voru bæði lasin heima í dag en Óðinn Bragi fór í leikskólann hinn hressasti enda búinn að taka sitt út. Freyja er með 39 gráður, frekar örg og pirruð á þessu ástandi. Berst um í hósta og með stöðugt rennsli úr nefinu. Ég sjálf átti minn versta dag í gær, mæddist ægilega við að fara á milli hæða með hellur fyrir eyrunum og frekar drusluleg eitthvað en er á batavegi. Mikið hressari í dag svo það er allt á uppleið. Vonum bara að Freyja verði ekki lengi að hrista þetta af sér því heimilisfaðirinn fær langa helgi núna um hlegina, frí föstudag og mánudag, og svo eru bara tvær næturvaktir í næstu viku. Við ætluðum að gera eitthvað kósý og reyna að koma ýmsu í verk, hengja upp jólaljósin, taka jólakortamynd, fara á skauta, út að borða o.fl o.fl. svo vonandi verða allir orðnir hressir fyrir helgi!!!

Jæja jæja nú ætla ég að hætta þessu kvarti og fara að hugga mig í sófanum með þrist og djúpan. Eigum enn byrgðar frá Íslandi síðan um daginn:)

Bestu kveðjur
Erla Rut og lasarusarnir

Thursday, November 20, 2008

Er helgin búin??

Já einmitt, helgin bara búin og næsta að ganga í garð. Ótrúlegt hvað vikan getur flogið frá heimavinnandi húsmóður!!!;)

Um síðustu helgi var ráðist í að mála panelinn á efstu hæðinni og veggina í herbergjum krakkanna. Þá er allur panell í húsinu orðinn hvítur. Við fluttum í kjallarann á meðan og sváfum þar í fjórar nætur. Litlu dýrin sváfu saman á dýnu á gólfinu og fannst það frekar mikið stuð og tók það tímana tvo að sofna. Ég reyndi eins og ég gat að hjálpa til við málningavinnunna en þar sem ég meira svona eins og þeytispjald á milli barnanna og pensilsins verður að segjast eins og er að Palli gerði þetta nú að mestu leyti einn. Á sunnudaginn litum við nú aðeins upp úr málningardollunum og kíktum í Liseberg. Þetta var fyrsta helgi jólaopnunar og komumst við í mikið jólaskap:) Þeir lofa sko snowgaranti og urðum við vör við það, á smá svæði var þessi fíni gervisnjór yfir öllu og ljúfir jólatónar. Þar er líka skautasvell og skíðabrekka. Við ætlum að fara fljótlega aftur og taka skautana  með:) mikið stuð og mikil gleði.

Annars höfum við haft það bara gott. Óðinn Bragi var heima fyrstu þrjá daga vikunnar, með astmakvef og soldið slappur karl. Við reyndum nú að gera eitthvað til að stytta okkur stundirnar og bjuggum okkur til trölladeig og föndruðum smá jólaföndur. Á morgun ætlum við svo að baka piparkökurnar svo við eigum nú nóg af þeim þegar aðventan gengur í garð:)

Kíkiði svo endilega á myndirnar okkar. September og október eru loksins komnir inn;)

Bið að heilsa í bili
Knús yfir hafið
Erly pearly

Thursday, November 13, 2008

We will rock you!

We will we will rock you hljómar af vörum beggja barnanna minna þessa dagana. Ég snéri mér nú bara við og gapti þegar Freyja Sif byrjaði líka. Óðinn Bragi tróð upp á sumarhátíð í leikskólanum í vor og tók þar ásamt þremur öðrum sænskan eruovision smell. Annar hópur tróð upp með we will rock you. Þetta var mjög skemmtileg hátíð og hver smellurinn á fætur öðrum tekinn. Í vikunni fengu þau að horfa á upptöku af hátíðinni á leikskólanum. Hann kom sönglandi heim þann daginn we will rock you og hefur sönglað það mikið síðan. Svo byrjaði Freyja Sif í gær með laglínuna alveg á hreynu, ííiii ííiii okkjú. Já það er ókeypis skemmtun hér á hverjum degi. Ég náði held ég einhverju á videó. Þarf að ræða við tæknimanninn á heimilinu hvernig ég sit það á netið:)

Annars erum við hress. Hlökkum til helgarinnar. Ætlum að gera eitthvað ógeðslega skemmtilegt:) Segi ykkur kannski frá því eftir helgi;)

Bless í bili
Erla Rut og co.

Thursday, November 6, 2008

Máli mál

Jahh hvað haldiði. Kallinn er á næturvöktum þessa vikuna og við ákváðum að nota tímann á daginn á meðan að börnin eru í leikskólanum til að mála panelinn í loftonum í húsinu. Nú er panellinn í kjallaranum og á miðhæðinni orðinn hvítur og fínn og húsið hefur bara stækkað finnst mér um þónokkra fermetra. Þá er bara efsta hæðin eftir og stefnan tekin á hana eftir þrjár vikur, þá er næsta næturvaktavika:) Alltaf gaman að gera soldið fínt hjá sér:)

Annars er allt gott í fréttum héðan. Allt við það sama, bumban vex og frúin orðin heldur hreyfihömluð á köflum, stynur ægilega við að klæða sig í sokkana og bryður bakflæðtöflur á kvöldin til að geta sofið eitthvað fyrripart nætur. Þetta eru nú bara hressandi og skemmtilegir fylgikvillar þessara síðustu mánaða meðgöngunnar og um að gera að njóta þeirra á meðan ástandið varir;)

Börnin eru hress og ánægð með lífið. Veturinn skall hér á með látum á einni nóttu fyrir um það bil einni viku. Skítakuldi allan daginn og ekkert um annað að ræða en skíðadressið og ilja sér með te eða kakó þegar inn er komið. Við fluttum klukkuna á vetrartíma um þarsíðustu helgi og þar með skall myrkrið á klukkutíma fyrr á daginn. Seinnipartarnir eru sem sagt soldið dimmir og kaldir svo við erum voða dugleg að hugga okkur í kjallaranum með kertaljós og kósýheit. Það er nú einmitt sjarminn við þennan árstíma og við njótum þess eins og við getum:)

Óðinn Bragi er að fyllast af jólahug og getur ekki beðið eftir jólunum. Það er soldið erfitt að róa taugarnar og biðina þar sem tímahugtakið er ekki alveg orðið tært í kollinum á honum. 
Hann spyr: "mamma hvað er langt þangað til jólin koma?" 
M: það eru tveir mánuðir. Nokkrar vikur. Það er soldið langt þangað til. 
ÓB: Já eru tíu dagar þangað til??  (það finnst honum mjög langur tími!!!)
M: nei það er miklu  meira
ÓB: mamma ég get ekki beðið
Hluti af spenningnum er að þegar jólin eru búin þá kemur nýja barnið og hann er mikið að spá í það þessa dagana hvenar og hvernig þetta gerist allt saman. Gaman að því:)
Tölurnar eru líka soldið að vefjast fyrir honum og algengt að fá spurningar eins og:
ÓB: mamma er 29 miklu meira en 30????
M: Nei það er einum minna en 30.
ÓB: já!! en 25 er það miklu meira en 30????
M: Nei það er líka minna en 30.
Svo það eru miklar pælingar í gangi í kollinum á drengnum og vonandi fer eitthvað að skýrast þarna uppi:) 

Skemmtilegt þetta líf:)
Kveð að sinni. Hafið það gott öll.
Knús og kram frá Gautaborgurum;) 
xox xox xox