Thursday, October 30, 2008

Vá hvað tíminn líður!!!

Hann flýgur aldeilis frá manni tíminn. Bara einn og hálfur mánuður síðan ég bloggaði síðast og þrjár vikur síðan við komum aftur heim frá Íslandi, sem er nú líka heim en þar eigum við tvö heim svo við eigum alls þrjú heim. Ekki slæmt það. Vitum bara ekki alltaf hvaða heim við erum að tala um þegar við tölum um heim en ætli heimilið okkar hérna í bláa húsinu, eins og  við köllum það, sé ekki mest heim núna.

Íslandsferðin var ljúf og góð þrátt fyrir hremmingar í efnahagsmálunum á klakanum. Yndislegt að hitta alla, þó við hefðum nú viljað komast yfir fleiri heimsóknir og hittinga. Ótrúlegt hvað tíminn er fljótur að fljúga frá manni og maður kemst ekki yfir helminginn af því sem maður ætlaði að gera. Þurfum að skipuleggja þetta betur næst, góðan hóphitting einhversstaðar á góðum stað;) En það var gott að anda að sér kalda loftinu á klakanum og skella sér á snjóþotu og svona.

Þegar við lentum í Köben kom Guðjón Bragi og sótti okkur, en þau Harpa geymdu bílinn fyrir okkur, og brunaði með okkur heim til þeirra og bauð uppá þessa líka dýryndis kreppusúpu eins og hann kallaði hana. Það var frábært að stoppa og teygja úr sér áður en við lögðum svo af stað í bíltúrinn til Gautaborgar. Þökkum kærlega hlýjar og góðar móttökur;)

Það var ágætt að eiga þriggja daga helgi framundan til að vinda ofan af tímamismuninum og óreglunni sem gerir iðulega vart við sig í svona fríum. Nú svo tók bara rútínan og hversdagurinn við. Eins og það er nú gott að brjóta upp annað slagið rútínuna þá er nú alltaf gott að fara í hana aftur. Ég byrjaði á sænskunámskeiði þegar við komum aftur heim. Var reyndar eitthvað vitlaust metin í námskeið og lenti á allt of léttu námskeiði. Strax á öðrum degi vildi kennarinn útskrifa mig og setja mig á annað námskeið sem byrjar í janúar. Þá verð ég nú orðin eitthvað annars hugar og ákvað að halda bara aðeins áfram á þessu námskeiði og láta hana leiðrétta mig og hafa soldið fyrir mér. Ég fékk samt frjálsa mætingu þar sem ég er eiginlega útskrifuð. Svo ég bara les og skrifa eitthvað bull hérna heima og fer svo af og til og læt hana fara yfir, mjög þægilegt.

Svo er hrekkjavaka um næstu helgi en það er siður sem hefur fest í sessi hér í landi og maður verður vel var við í búðunum núna. Ætli við reynum ekki að taka einhvern þátt í því. Keypti einhverja nammipoka í gær til að eiga handa betlandi krökkum. Finn svo einhverja búninga til á börnin og höfum gaman af þessu:)

Heyrðu já ég lofa bótum á myndaleysinu fljótlega, en þangað til næst,
hafið það gott og munið að hugga ykkur í kreppunni;)

knús og kossar
Erla Rut og co.