Tuesday, August 26, 2008

Skapstór lítil stelpa

Freyja Sif er búin að vera í aðlögun síðan á mánudag í síðustu viku. Hérlendis er farið aðeins hægar í svona leikskólaaðlögun en heima. Hér eru alveg tvær vikur í aðlögun eða meira eða minna eftir þörfum barnsins. Freyja er á sinni seinni viku núna og hefur gengið mjög vel enda ég verið á staðnum og hún svona litið eftir mér öðru hverju hvort ég sé ekki örugglega þarna ennþá. Í dag skildi ég hana svo eftir í fyrsta skipti og ákvað hún þá að sýna þeim þessu kellingum þarna hvað í henni býr. Hún tapaði sér í reiði og henti sér í gólfið, það fékk sko enginn að halda á henni. Þær áttu ekki orð aumingja konurnar en gáfust ekki upp, sóttu vagninn hennar með bangsanum og duddu í og buðu henni þar oní sem hún þáði nú og róaði sig þar á öruggum stað. Þegar hún hins vegar var búin að jafna sig nokkrum mínútum síðar skreið hún sjálf úr vagninum og fór að leika sér og var bara hin hressasta. 
Já maður verður nú einhvernvegin að láta í ljós óánægju sína þegar manni er misboðið. Nú verður spennandi að sjá hvernig viðbrögðin verða í fyrramálið. 

En já við höfum það gott
hafið það gott líka

Erla Rut og allir hinir líka

Thursday, August 21, 2008

Jæja jæja

Já ég fór í bloggsumarfrí en er komin aftur fersk og endurnærð:) Vona að allir hafi haft það fínt í sumar. Við erum allavega búin að hafa það voða fínt. Fengum fullt af gestum og brölluðum ýmislegt skemmtilegt með þeim. Anna og Jónas komu í júní, svo komu Abba og Bogey, næst voru Logi, Bína, Bjartur og Sunna og síðust komu mamma og pabbi og svo Gummi bróðir með Nönnu og Sóleyju. Einhverjar myndir voru teknar en myndavélin er eitthvað orðin gömul og lúin eða allavega batteríin í henni svo ansi oft þegar átti að fara taka myndir stóðum við með batteríslausa myndavél. En einhverjar tókst okkur að taka og þær sjáið þið á myndasíðunni okkar. 

Nú er hins vegar rútínan tekin aftur við. Palli farinn að vinna aftur Óðinn Bragi kominn í leikskólann sinn aftur og Freyja Sif byrjuð í aðlögun í leikskólanum líka. Ég er á biðlista eftir sænskunámskeiði og vonast til að komast inn í september eða október. Helst ekki fyrr en í október samt því við ætlum að skella okkur í heimsókn til Íslands í lok september og fram  í október, svo það myndi henta einstaklega vel ef námskeiðið myndi ekki byrja fyrr en eftir íslandsferðina, en það kemur í ljós.

Já það eru víst fleiri fréttir af okkur sem eflaust einhverjir eiga eftir að heyra. Fjölskyldan er sem sagt að fara að stækka um einn heilann í janúar. Eins og myndirnar sína er nú þó nokkuð farið að sjást á frúnni enda þriðja skiptið sem belgurinn er teygður út með stuttu millibili. Sónarinn er búinn og enginn typpalingur sást þrátt fyrir sterka tilfinningu mína fyrir strák en ljósan vildi nú heldur ekki lofa stelpu því það voru víst mjög slæm skilirði til að greina þarna á milli svo við verðum víst bara að bíða og sjá. líkurnar eru enn 50 á móti 50;) En þar sem við eigum nú eitt af hvoru tagi erum við ekki að stressa okkur á þessu, þetta kemur bara í ljós. Okkur heilsast allavega vel og það er fyrir öllu.

En jæja þá eru helstu fréttir komnar til skila svo ég ætla að fara að snúa mér að ryksugunni, minni bestu vinkonu:)

Þangað til mjög fljótlega 
hafið það rosa gott
knús og kossar
Erla Rut