Tuesday, December 2, 2008

...og viti menn..

hún lifnaði við!!! Tæknimaðurinn á heimilinu er náttúrulega ótrúlegur. Hann bjargar ekki bara mannslífum heldur vekur hann líka tölvur aftur til lífsins!!! Þetta er ekki langt og flókið ferli. Þú bara blótar helvítinu verulega færð þér svo skrúfjárn í hönd og hefst handa, grúskar aðeins á netinu kannski, blótar pínu meira og ferð svo út í búð að kaupa box utan um harða diskinn til að komast að því hvort það er tölvan eða harði diskurinn sem krassaði. Svo kemstu að því að harði diskurinn er ónýtur svo það eru smá líkur á að tölvan sé enn í lagi. Næsta skref er að panta nýjan harðan disk í elskuna sem barst á ógnarhraða í hús. Þá er að taka aftur fram skrúfjárnin og krossa fingur og vona að allt gangi upp og fari vel. Sem það gerir kannski ekki í fyrstu tilraun en þá er bara að blóta soldið meira og grúska aftur á netinu og láta sér detta eitthvað sniðugt í hug. Svo kannski þiggur maður kaffibolla frá diggum stuðningsaðila, sest svo aftur og strýkur elskunni soldið blíðlega og talar fallega við hana og allt gengur upp. Tölvan hrekkur í gang og allir eru glaðir, tæknimaðurinn kannski sérstaklega en ekki sýður stuðningsaðilinn sem situr nú og stofunni sinni og hlustar á jólalög fær sér söru og mjólk og chillar með fartölvuna í fanginu!!!
Nokkuð vel af sér vikið og fær tæknimaðurinn margfaldar þakkir fyrir frammistöðuna. Ég hefði auðvitað aldrei klórað mig fram úr þessu á þennan hátt en lagði mitt að mörkum með góðum móral og talsverðri hvatningu, smákökubakstri og alveg ágætis eldamennsku!!

Annars er heilsufarið á heimilinu að skána. Freyja fór í leikskólann í dag en hafði þá ekki farið síðan síðasta þriðjudag. Hún var hress og kát með það. Svo var síðasti tíminn í íþróttaskólanum hans Óðins Braga í dag og fengu þá foreldrar að koma og fylgjast með. Tíminn var teypaður og filmaður svo þegar tími gefst til fáið þið að sjá alveg hreint ótrúleg tilþrif;)

en jæja ætla að láta þetta duga í bili
kveð með kurt og bí 
og segi æ lov jú

Early Pearly

7 comments:

Logi Helgu said...

Ég held að Palli hafi verið með rangan hnýtingagaldur, hann þarf að fara að rifja upp hnýtingar frá ömmu sinni ;)

Páll Sigurgeir Jónasson said...

þetta gekk loks þegar ég notaði helvítis djöfulsins andskotans fokkings helvíti þuluna.
Sænsk blótsyrði virðast vera kraftminni en þau íslensku.

Logi Helgu said...

Já, það er ekki nógu mikil harka í þessu á sænsku... maður hljómar bara eins og hálf norskur álfur að væla ef maður blótar á sænsku ;)

Anonymous said...

á ekkert að fara að setja inn myndir frænka? Kv. Árný

Anonymous said...

Hæ :-)
Hvernig gengur jólaundirbúningur í Gautaborg?
Kveðja, Inga Jóns.

Anonymous said...

hæhæ
langaði að kommenta hérna.. þetta er nett.. langar endilega að sjá we will rock you vídjóin.. get ekki neitað því að ég er ansi forvitinn að vita hvernig það kom út..
kveðja
Sveinbjörn

harpa said...

hahahaha!! Já Erla það hafa amk sumir heimilismenn verið ánægðir með það að þú drifir þig bara í eldhúsið að baka til að "gera eitthvað gagn".. bakaðirðu nokkuð snúða líka? ;)

En ég held að við þurfum að fá palla aðeins lánaðan hingað niðureftir. Nýja time machine-ið hans guðjóns er ekki alveg nógu æðisleg og vonir stóðu til. Tæknin er eitthva að stríða okkur og guðjón er bara held ég ekki nógu skapmikill til að laga þetta.