We will we will rock you hljómar af vörum beggja barnanna minna þessa dagana. Ég snéri mér nú bara við og gapti þegar Freyja Sif byrjaði líka. Óðinn Bragi tróð upp á sumarhátíð í leikskólanum í vor og tók þar ásamt þremur öðrum sænskan eruovision smell. Annar hópur tróð upp með we will rock you. Þetta var mjög skemmtileg hátíð og hver smellurinn á fætur öðrum tekinn. Í vikunni fengu þau að horfa á upptöku af hátíðinni á leikskólanum. Hann kom sönglandi heim þann daginn we will rock you og hefur sönglað það mikið síðan. Svo byrjaði Freyja Sif í gær með laglínuna alveg á hreynu, ííiii ííiii okkjú. Já það er ókeypis skemmtun hér á hverjum degi. Ég náði held ég einhverju á videó. Þarf að ræða við tæknimanninn á heimilinu hvernig ég sit það á netið:)
Annars erum við hress. Hlökkum til helgarinnar. Ætlum að gera eitthvað ógeðslega skemmtilegt:) Segi ykkur kannski frá því eftir helgi;)
Bless í bili
Erla Rut og co.
4 comments:
hæ elskan,
sá bara að enginn var búinn að kommentera á þessa annars frábæru færslu.
Jæja, nú er allavega komið 1 komment.
puss, puss
Æ elskan takk fyrir kommentið
Hæ! Nú er komið eftir helgi :-) Hlakka til að heyra frá helginni ykkar. Ég kíki mjög reglulega á bloggið til að sjá hvort er ekki komið eitthvað nýtt, ekki alveg jafndugleg að kommenta..
Kær kveðja út,
Inga Jóns.
Inga mín láttu ekki hann Palla rugla eitthvað í þér. Er ekki sú duglegasta sjálf við kommentin!!! Hann er bara með skítamóral eins og það heitir á góðri íslensku;)
Post a Comment