Wednesday, November 26, 2008

Fartalvan dó!!!

Já nú sit ég inn á kontor og rita hér nokkur orð. Ég sem hélt að Eplatölvur væru ódauðlegar en viti menn, skvísan bara gaf upp öndina!!! Ekki skemmtilegt að þurfa að sitja hér í þessu annars ágæta herbergi en stofan, kjallarinn eða eldhúsið er nú huggulegra með sjónvarpið eða eitthvað annað í gangi í leiðinni!!! En við höfum allavega tölvu, (hún er bara ekki færanleg), svo maður ætti nú kannski ekki að vera að kvarta neitt!!!

Annars er allt ágætt í fréttum af okkur fyrir utan heilsufarið á liðinu. Um leið og Óðinn Bragi hristi af sér kvefið þá tókum við hin þrjú við. Palli og Freyja voru bæði lasin heima í dag en Óðinn Bragi fór í leikskólann hinn hressasti enda búinn að taka sitt út. Freyja er með 39 gráður, frekar örg og pirruð á þessu ástandi. Berst um í hósta og með stöðugt rennsli úr nefinu. Ég sjálf átti minn versta dag í gær, mæddist ægilega við að fara á milli hæða með hellur fyrir eyrunum og frekar drusluleg eitthvað en er á batavegi. Mikið hressari í dag svo það er allt á uppleið. Vonum bara að Freyja verði ekki lengi að hrista þetta af sér því heimilisfaðirinn fær langa helgi núna um hlegina, frí föstudag og mánudag, og svo eru bara tvær næturvaktir í næstu viku. Við ætluðum að gera eitthvað kósý og reyna að koma ýmsu í verk, hengja upp jólaljósin, taka jólakortamynd, fara á skauta, út að borða o.fl o.fl. svo vonandi verða allir orðnir hressir fyrir helgi!!!

Jæja jæja nú ætla ég að hætta þessu kvarti og fara að hugga mig í sófanum með þrist og djúpan. Eigum enn byrgðar frá Íslandi síðan um daginn:)

Bestu kveðjur
Erla Rut og lasarusarnir

2 comments:

Logi Helgu said...

Þið hristið þetta vonandi af ykkur ;)
Palli hefur þá fengið ærna ástæðu til að versla nýtt epli ;)

harpa said...

já er ekki palli bara ánægður með þetta?

annars langar mig MJÖG MIKIÐ í þrist og djúpur..

Úlfur þakkar kærlega fyrir sendinguna sem hann fékk í morgun. Hann segir að mamma hans sé "ýkt ánægð" með gjöfina ;)