Thursday, November 20, 2008

Er helgin búin??

Já einmitt, helgin bara búin og næsta að ganga í garð. Ótrúlegt hvað vikan getur flogið frá heimavinnandi húsmóður!!!;)

Um síðustu helgi var ráðist í að mála panelinn á efstu hæðinni og veggina í herbergjum krakkanna. Þá er allur panell í húsinu orðinn hvítur. Við fluttum í kjallarann á meðan og sváfum þar í fjórar nætur. Litlu dýrin sváfu saman á dýnu á gólfinu og fannst það frekar mikið stuð og tók það tímana tvo að sofna. Ég reyndi eins og ég gat að hjálpa til við málningavinnunna en þar sem ég meira svona eins og þeytispjald á milli barnanna og pensilsins verður að segjast eins og er að Palli gerði þetta nú að mestu leyti einn. Á sunnudaginn litum við nú aðeins upp úr málningardollunum og kíktum í Liseberg. Þetta var fyrsta helgi jólaopnunar og komumst við í mikið jólaskap:) Þeir lofa sko snowgaranti og urðum við vör við það, á smá svæði var þessi fíni gervisnjór yfir öllu og ljúfir jólatónar. Þar er líka skautasvell og skíðabrekka. Við ætlum að fara fljótlega aftur og taka skautana  með:) mikið stuð og mikil gleði.

Annars höfum við haft það bara gott. Óðinn Bragi var heima fyrstu þrjá daga vikunnar, með astmakvef og soldið slappur karl. Við reyndum nú að gera eitthvað til að stytta okkur stundirnar og bjuggum okkur til trölladeig og föndruðum smá jólaföndur. Á morgun ætlum við svo að baka piparkökurnar svo við eigum nú nóg af þeim þegar aðventan gengur í garð:)

Kíkiði svo endilega á myndirnar okkar. September og október eru loksins komnir inn;)

Bið að heilsa í bili
Knús yfir hafið
Erly pearly

2 comments:

Ásdís Rósa said...

Jeij! Bloggedí blogg! Að hugsa sér að liðið sé heilt ár síðan við heimsóttum ykkur! Heilt ár síðan Ívar vann risa Daimið! Ógleymanleg ferð. Væri alveg til í að smella mér í smá jóla-Liseberg með Erlunni minni ;)

Erla Rut Magnúsdóttir said...

Húsið er opið. Láttu bara vita hvenar þið komið;)