Óðinn Bragi er mjög hress líka. Hæstánægður með leikskólann og bíður nú spenntur eftir að byrja á íþróttanámskeiði sem byrjar á þriðjudag eftir rúma viku. Hins vegar spyr hann reglulega hvenar jólin koma og býður spenntur eftir þeim, en ástæðan fyrir því er held ég sú að ég sagði honum um daginn að barnið kæmi úr bumbunni eftir jól. Gæti orðið löng bið eftir jólunum og svo barninu en ýmislegt að gerast fram að því. Íslandsferðin er náttúrlega næst á dagskrá og bara tvær vikur í hana við erum orðin mjög spennt:)
Um síðustu helgi fengum við þau Hörpu Hrönn, Guðjón Braga og Úlf Stefán í heimsókn. Það var virkilega kósý og skemmtilegt. Pizzakvöld á föstudeginum og bæjarferð á laugardeginum svo var brunað heim og íslensku lambi skellt á grillið. Svo brunuðu þau til baka til Köben uppúr hádegi á sunnudeginum. Mjög góð helgi, takk fyrir komuna mínir kæru vinir.
Þessi helgi er búin að líða ósköp ljúft og hægt frá okkur. Palli var í vinnunni í gær og hellidemba fram eftir degi svo við hin tókum því bara verulega rólega hérna heima. Kíktum svo aðeins út á róló seinnipartinn þegar stytti upp. Palli átti að vera fram yfir kvöldmat á vaktinni en svo kom í ljós að hann þurfti að taka nóttina líka. Hann fékk að skreppa heim í tvo tíma um kvöldmatarleytið. Við hin héldum áfram að hafa það kósý á meðan hann fór aftur í vinnunna og kom svo ósofinn heim í morgun. Við ákváðum þá að drífa okkur eitthvað út svo hann gæti sofið og tókum okkur til í sund sem var svo lokað þar sem hreinsunarbúnaður var eitthvað bilaður. Þá brunuðum við bara í ræktina og mamman tók aðeins á því þar og börnin léku sér í barnagæslunni sem er alveg frábær og þau hæstánægð að komast í. Svo ákváðum við að leyfa pabbanum að sofa aðeins lengur og skelltum okkur á Burger King til að drepa tímann örlítið lengur. Það fór nú vel í liðið og allir hæst ánægðir með daginn. Nú er allt í rólegheitum. Freyja sefur, Óðinn Bragi að leika sér í legó og við að sötra kaffi!! Ljúfur og góður sunnudagur:)
Hafið það gott elskurnar
xox xox xox
Erla bumba
3 comments:
Hæhæ yndin mín, innilega til hamingju með nýjasta fjölskyldumeðliminn:)
knúsknús
ásta
Þetta eru bestu sunnudagarnir. Ekkert plan, gott kaffi og dund.
Átti einmitt einn svoleiðis um helgina. Gott að öllum líður vel og þið hafið það greinilega súpergott þarna, þó Palli þurfi stundum óvænt að vinna á nóttinni..
Kv, Inga J.
Hæ Öll.
Gott að vita að allir eru hressir og kátir.
Vonandi næ ég að hitta ykkur á Íslandi en ég og Siggi erum að fara til Filippseyja á mánudaginn. Komum aftur til Íslands 30 sep. en verðum ekki komin austur fyrr en 3 okt.
Það er gott að Svíarnir taka aðlögun barna rólega, við getum örugglega ýmislegt af þeim lært í þeim efnum. Ívar er fluttur til Reykjavíkur og bara mjög rólegt hjá okkur Sigga.
Gangi ykkur vel ástarkveðja til ykkar.
Gulla móða
Post a Comment