Wednesday, September 10, 2008

Nýjustu tölur

Freyja Sif var í mælingum í morgun en hún hefur verið í auknu eftirliti vegna þess hve smá hún er. Tölurnar í morgun komu hins vegar mjög vel út og mældist hún 10,9 kíló og 82,9 cm. Eða eigum við að segja 11 kíló og 83 cm og málið er dautt;) Hingað til hefur hún verið rúmum tveimur staðalfrávikum undir meðalkúrfu og þótti það of mikið, en hafði svo núna rokið upp í eitt og hálft staðalfrávik undir meðalkúrfu þannig að daman er svo sannarlega að taka við sér. Hún er sem sagt enn þá undir meðalkúrfunni sem er nú samt allt í lagi innan ákveðinna marka, enda ekki komin af neinum risum og hefði sennilega þurft að eiga einhverja aðra foreldra ef hún hefði átt að verða einhver risi:) Íslenski læknirinn okkar sem hefur verið með hana í þessu eftirliti er nú fluttur heim en það kom ekki að sök því nýji sænski læknirinn hennar eiginlega bara útskrifaði hana úr þessu eftirliti. Þegar heilsa barnanna manna er annars vegar er mjög gott að geta tjáð sig á sínu tungumáli og skilið öll samskipti við lækninn. Því erum við mjög glöð með tímasetningu mannsins á flutningnum heim og framfarir dömunnar.
Ísinn, pulsurnar og allt góðgætið í sumar hefur greinilega farið vel í drottninguna svo nú er bara að halda áfram og fara kannski að taka aðeins á borðsiðunum. Hingað til höfum við haft þau fyrirmæli frá lækni að hún eigi að borða hvað sem er hvenar sem er og höfum við reynt að fara eftir því, allt til að skvísan stækki. Það hefur þýtt söng og leiki við matarborðið, mat fyrir framan sjónvarpið, mat í baðinu, mat úti á róló og mat út um allt. Fara fram og til baka frá borðinu, því einbeiting dömunnar er ekki mikil og ekki mikil eirð í henni til að sitja lengi við matarborðið og næra sig. Ef athyglin er hins vegar á einhverju öðru og einhver nennir að moka upp í hana á meðan getur hún svo sem alveg borðað og þetta hefur verið látið eftir henni þar sem hún þurfti að borða og stækka. Nú eru spennandi tímar fram undan þar sem reynt verður að taka á þessum málum. Sjáum hvernig fer. Sú stutta er nú þekkt fyrir þrjósku og ákveðið skap og móðirin þó þolinmóð sé hefur ekki alltaf þolinmæði í litlu gribbu. Spennandi að sjá hver hefur betur;)

En allavega góðar fréttir og engin hormónameðferð fyrirhuguð sem er mikill léttir. Það hefði þýtt sprautu í puttann á hverju kvöldi frá þriggja ára aldri fram á gelgjuskeið 13-14 ár svo við erum mjög kát með þetta:)

Erum farin að telja niður í íslandsferðina, nú eru 10 dagar þangað til  jiiibbííííí

Knús og kossar
Erla Rut och familj

5 comments:

Logi Helgu said...

Ég hef nú aldrei skilið þessar áhyggjur af Freyju Sif og gott að heyra að læknarnir hafa útskrifað hana.
Sunna fær einmitt líka að borða á ferðinni þ.s. hún er ekki mikið fyrir það...mikið rosalega vona ég maður fái það ekki í hausinn þannig að hún neiti alveg að borða við borð...þá verður bara hungurverkfall.
Hlökkum til að sjá ykkur á klakanum ;)

Páll Sigurgeir Jónasson said...

"Enda ekki komin af neinum risum"????

Hvurn fjandann áttu vid kona???!!!

Ásdís Rósa said...

Hahahaha! Þetta eru sannarlega góðar fréttir. Af því sem ég þekki til ykkar mæðgna verð ég nú að segja að mínir peningar eru á Freyju í þrjóskukeppninni :)

Hlakka óskaplega til að sjá ykkur!

kv. Ásdís Rósa og co

Anonymous said...

Æ það er nú gott að Freyja Sif er útskrifuð, en ég tek nú undir með Loga það er ekki eins og Freyja sé ekki dugleg stelpa og það er ekkert að því að vera lítill ;-)

En hlakka til að sjá ykkur :-)

Kv. Árný

harpa said...

Nei nkl.. maður sá það klárlega um daginn að það er nú ekki mikið að þessari stelpu :) alveg brilliant karakter!