Tuesday, September 16, 2008

Jebb jebb

Óðinn Bragi var í dag að byrja í íþróttaskóla. Hann er einu sinni í viku klukkutími í senn. Hann er búinn að bíða eftir þessu svo lengi og var orðinn frekar spenntur þegar leið á daginn. Hann passaði sig sko vel á því að borða ekkert nema epli og annað sem kallast gæti íþróttanammi. Svo dressaði hann sig upp í Brasilíubúninginn og var til í slaginn. Svo var þvílíkt stuð, farið í leiki og þrautabraut o.fl. mikið hlaupið og svitnað. Gaman að þessu:) Nú reyndar missir hann af næstu þremur tímum þar sem við verðum á íslandi en hann hefur þá eitthvað að hlakka til þegar við komum aftur til baka:)

Annars er allt gott að frétta. Hægt og rólega verið að vinna úr things to do listanum áður en við förum og skipuleggja ferðalagið til Köben. Það eru fjórir dagar til stefnu og spennan magnast:) Freyja Sif náttúrulega skilur ekki neitt og gæti ekki verið meira sama, en Óðinn Bragi er farinn að skipuleggja hvað hann ætlar að gera þegar hann kemur á klakann. Ég sjálf ætla að byrja á klippingu strax á mánudagsmorguninn svo ég geti nú með góðu móti brosað framan í alla sem ég á eftir að hitta:)

Hlakka til að sjá ykkur
xox xox xox
Early pearly

1 comment:

Bína said...

Hey þið munið að Bjartur var búinn að taka loforð af Óðni Braga að koma BEINT heim til okkar þegar þið lendið!
Hehehehehe af því að það gerir hann þegar við komum til ykkar ;o) þannig að þetta er bara sanngjarnt....