Thursday, September 18, 2008

Það er gaman að þessu

Þau halda manni við efnið blessuð börnin. Í gærkvöldi var sama rútína og venjulega í háttatímanum, lásum, sungum og kysstumst góða nótt. Óðinn Bragi sofnaði mjög fljótlega en eitthvað brölt var á Freyju Sif, hlátrasköll og gleði. Ég lét hana nú eiga sig þar sem hún var ekkert að kvarta og hætti svo að heyra í henni og hún lognaðist út af. Þegar ég fór sjálf að sofa kíkti ég á börnin. Óðinn Bragi lá með mikilli værð  yfir sér og steinsvaf. Svo kíkti ég á Freyju Sif og fann hana þá allsnakta, steinsofandi í stórum pissupolli!!!! Gleðin hjá henni fyrr um kvöldið hefur snúist um það að klæða sig úr náttfötunum og bleyjunni, það fannst henni mjög fyndið. Hún lá svo oná náttfötunum sem voru rennandi pissublaut og meira og minna allt rúmið, töluvert af pissi slapp fram hjá pissulakinu en sængin slapp nú alveg. Það þurfti sem sé að skipta á rúminu og barninu. Hún skildi ekkert í þessu brölti en hélt svo bara áfram að sofa þegar var búið að græja allt saman.
Við fórum skellihlæjandi að sofa, því að þetta er náttúrulega bara fyndið barn og uppátækin ótrúleg.

Komum ekki á morgun heldur hinn
sjáumst þá;)
Erla Rut

2 comments:

Anonymous said...

Krúttlega saga. Ótrúlegir snillingar þessi börn.
Vona að allt eigi eftir að ganga vel í ferðalaginu ykkar og fluginu - og að þið fáið góðan tíma í Íslandi.
Kveðja
Elísabet Grettis

Ásdís Rósa said...

Bloggedí blogg!!!