Thursday, September 18, 2008

Það er gaman að þessu

Þau halda manni við efnið blessuð börnin. Í gærkvöldi var sama rútína og venjulega í háttatímanum, lásum, sungum og kysstumst góða nótt. Óðinn Bragi sofnaði mjög fljótlega en eitthvað brölt var á Freyju Sif, hlátrasköll og gleði. Ég lét hana nú eiga sig þar sem hún var ekkert að kvarta og hætti svo að heyra í henni og hún lognaðist út af. Þegar ég fór sjálf að sofa kíkti ég á börnin. Óðinn Bragi lá með mikilli værð  yfir sér og steinsvaf. Svo kíkti ég á Freyju Sif og fann hana þá allsnakta, steinsofandi í stórum pissupolli!!!! Gleðin hjá henni fyrr um kvöldið hefur snúist um það að klæða sig úr náttfötunum og bleyjunni, það fannst henni mjög fyndið. Hún lá svo oná náttfötunum sem voru rennandi pissublaut og meira og minna allt rúmið, töluvert af pissi slapp fram hjá pissulakinu en sængin slapp nú alveg. Það þurfti sem sé að skipta á rúminu og barninu. Hún skildi ekkert í þessu brölti en hélt svo bara áfram að sofa þegar var búið að græja allt saman.
Við fórum skellihlæjandi að sofa, því að þetta er náttúrulega bara fyndið barn og uppátækin ótrúleg.

Komum ekki á morgun heldur hinn
sjáumst þá;)
Erla Rut

Tuesday, September 16, 2008

Jebb jebb

Óðinn Bragi var í dag að byrja í íþróttaskóla. Hann er einu sinni í viku klukkutími í senn. Hann er búinn að bíða eftir þessu svo lengi og var orðinn frekar spenntur þegar leið á daginn. Hann passaði sig sko vel á því að borða ekkert nema epli og annað sem kallast gæti íþróttanammi. Svo dressaði hann sig upp í Brasilíubúninginn og var til í slaginn. Svo var þvílíkt stuð, farið í leiki og þrautabraut o.fl. mikið hlaupið og svitnað. Gaman að þessu:) Nú reyndar missir hann af næstu þremur tímum þar sem við verðum á íslandi en hann hefur þá eitthvað að hlakka til þegar við komum aftur til baka:)

Annars er allt gott að frétta. Hægt og rólega verið að vinna úr things to do listanum áður en við förum og skipuleggja ferðalagið til Köben. Það eru fjórir dagar til stefnu og spennan magnast:) Freyja Sif náttúrulega skilur ekki neitt og gæti ekki verið meira sama, en Óðinn Bragi er farinn að skipuleggja hvað hann ætlar að gera þegar hann kemur á klakann. Ég sjálf ætla að byrja á klippingu strax á mánudagsmorguninn svo ég geti nú með góðu móti brosað framan í alla sem ég á eftir að hitta:)

Hlakka til að sjá ykkur
xox xox xox
Early pearly

Wednesday, September 10, 2008

Nýjustu tölur

Freyja Sif var í mælingum í morgun en hún hefur verið í auknu eftirliti vegna þess hve smá hún er. Tölurnar í morgun komu hins vegar mjög vel út og mældist hún 10,9 kíló og 82,9 cm. Eða eigum við að segja 11 kíló og 83 cm og málið er dautt;) Hingað til hefur hún verið rúmum tveimur staðalfrávikum undir meðalkúrfu og þótti það of mikið, en hafði svo núna rokið upp í eitt og hálft staðalfrávik undir meðalkúrfu þannig að daman er svo sannarlega að taka við sér. Hún er sem sagt enn þá undir meðalkúrfunni sem er nú samt allt í lagi innan ákveðinna marka, enda ekki komin af neinum risum og hefði sennilega þurft að eiga einhverja aðra foreldra ef hún hefði átt að verða einhver risi:) Íslenski læknirinn okkar sem hefur verið með hana í þessu eftirliti er nú fluttur heim en það kom ekki að sök því nýji sænski læknirinn hennar eiginlega bara útskrifaði hana úr þessu eftirliti. Þegar heilsa barnanna manna er annars vegar er mjög gott að geta tjáð sig á sínu tungumáli og skilið öll samskipti við lækninn. Því erum við mjög glöð með tímasetningu mannsins á flutningnum heim og framfarir dömunnar.
Ísinn, pulsurnar og allt góðgætið í sumar hefur greinilega farið vel í drottninguna svo nú er bara að halda áfram og fara kannski að taka aðeins á borðsiðunum. Hingað til höfum við haft þau fyrirmæli frá lækni að hún eigi að borða hvað sem er hvenar sem er og höfum við reynt að fara eftir því, allt til að skvísan stækki. Það hefur þýtt söng og leiki við matarborðið, mat fyrir framan sjónvarpið, mat í baðinu, mat úti á róló og mat út um allt. Fara fram og til baka frá borðinu, því einbeiting dömunnar er ekki mikil og ekki mikil eirð í henni til að sitja lengi við matarborðið og næra sig. Ef athyglin er hins vegar á einhverju öðru og einhver nennir að moka upp í hana á meðan getur hún svo sem alveg borðað og þetta hefur verið látið eftir henni þar sem hún þurfti að borða og stækka. Nú eru spennandi tímar fram undan þar sem reynt verður að taka á þessum málum. Sjáum hvernig fer. Sú stutta er nú þekkt fyrir þrjósku og ákveðið skap og móðirin þó þolinmóð sé hefur ekki alltaf þolinmæði í litlu gribbu. Spennandi að sjá hver hefur betur;)

En allavega góðar fréttir og engin hormónameðferð fyrirhuguð sem er mikill léttir. Það hefði þýtt sprautu í puttann á hverju kvöldi frá þriggja ára aldri fram á gelgjuskeið 13-14 ár svo við erum mjög kát með þetta:)

Erum farin að telja niður í íslandsferðina, nú eru 10 dagar þangað til  jiiibbííííí

Knús og kossar
Erla Rut och familj

Sunday, September 7, 2008

Sunnudagur

Já síðustu fréttir voru af aðlögun prinsessunnar í leikskólanum. Af því er það að frétta að þetta gengur bara mjög vel. Kveðjustundin er stundum örlítið tregafull en batnar með hverjum degi. Henni finnst mjög skemmtilegt að syngja og dansa og það gjarnan notað til að dreyfa huga hennar fyrst eftir að ég er farin. Þá eru græjurnar tjúnaðar með Línu Langsokk í og allir dansa og syngja og mín búin að gleyma sér:)

Óðinn Bragi er mjög hress líka. Hæstánægður með leikskólann og bíður nú spenntur eftir að byrja á íþróttanámskeiði sem byrjar á þriðjudag eftir rúma viku. Hins vegar spyr hann reglulega hvenar jólin koma og býður spenntur eftir þeim, en ástæðan fyrir því er held ég sú að ég sagði honum um daginn að barnið kæmi úr bumbunni eftir jól. Gæti orðið löng bið eftir jólunum og svo barninu en ýmislegt að gerast fram að því. Íslandsferðin er náttúrlega næst á dagskrá og bara tvær vikur í hana við erum orðin mjög spennt:)

Um síðustu helgi fengum við þau Hörpu Hrönn, Guðjón Braga og Úlf Stefán í heimsókn. Það var virkilega kósý og skemmtilegt. Pizzakvöld á föstudeginum og bæjarferð á laugardeginum svo var brunað heim og íslensku lambi skellt á grillið. Svo brunuðu þau til baka til Köben uppúr hádegi á sunnudeginum. Mjög góð helgi, takk fyrir komuna mínir kæru vinir.

Þessi helgi er búin að líða ósköp ljúft og hægt frá okkur. Palli var í vinnunni í gær og hellidemba fram eftir degi svo við hin tókum því bara verulega rólega hérna heima. Kíktum svo aðeins út á róló seinnipartinn þegar stytti upp. Palli átti að vera fram yfir kvöldmat á vaktinni en svo kom í ljós að hann þurfti að taka nóttina líka. Hann fékk að skreppa heim í tvo tíma um kvöldmatarleytið. Við hin héldum áfram að hafa það kósý á meðan hann fór aftur í vinnunna og kom svo ósofinn heim í morgun. Við ákváðum þá að drífa okkur eitthvað út svo hann gæti sofið og tókum okkur til í sund sem var svo lokað þar sem hreinsunarbúnaður var eitthvað bilaður. Þá brunuðum við bara í ræktina og mamman tók aðeins á því þar og börnin léku sér í barnagæslunni sem er alveg frábær og þau hæstánægð að komast í. Svo ákváðum við að leyfa pabbanum að sofa aðeins lengur og skelltum okkur á Burger King til að drepa tímann örlítið lengur. Það fór nú vel í liðið og allir hæst ánægðir með daginn. Nú er allt í rólegheitum. Freyja sefur, Óðinn Bragi að leika sér í legó og við að sötra kaffi!! Ljúfur og góður sunnudagur:)

Hafið það gott elskurnar
xox xox xox
Erla bumba