Freyja Sif er búin að vera í aðlögun síðan á mánudag í síðustu viku. Hérlendis er farið aðeins hægar í svona leikskólaaðlögun en heima. Hér eru alveg tvær vikur í aðlögun eða meira eða minna eftir þörfum barnsins. Freyja er á sinni seinni viku núna og hefur gengið mjög vel enda ég verið á staðnum og hún svona litið eftir mér öðru hverju hvort ég sé ekki örugglega þarna ennþá. Í dag skildi ég hana svo eftir í fyrsta skipti og ákvað hún þá að sýna þeim þessu kellingum þarna hvað í henni býr. Hún tapaði sér í reiði og henti sér í gólfið, það fékk sko enginn að halda á henni. Þær áttu ekki orð aumingja konurnar en gáfust ekki upp, sóttu vagninn hennar með bangsanum og duddu í og buðu henni þar oní sem hún þáði nú og róaði sig þar á öruggum stað. Þegar hún hins vegar var búin að jafna sig nokkrum mínútum síðar skreið hún sjálf úr vagninum og fór að leika sér og var bara hin hressasta.
Já maður verður nú einhvernvegin að láta í ljós óánægju sína þegar manni er misboðið. Nú verður spennandi að sjá hvernig viðbrögðin verða í fyrramálið.
En já við höfum það gott
hafið það gott líka
Erla Rut og allir hinir líka
4 comments:
SKemmtileg tilviljun að ég ætlaði einmitt að fara að blogga um hversu skapstór Sunna gæti verið á almannafæri. Þær eru hressar þessar "dömur" ;)
Stjórnlaus í skapinu eins og foreldrarnir.
Kv, Inga J.
Mikil dásemd er þetta internet. Var að tala við hann Palla á face-inu og þá gaf hann mér upp heimasíðuna þína (vissi ekki af henni) Gaman að fá að fylgjast með og sjá allar þessar frábæru myndir. Ég var einmitt að segja við Palla að við hefum greinilega verið á sömu slóðum í sumar - því við fórum líka í Astrid Lindgren garðinn - en sáum ykkur því miður ekki þar. He he he. Fórum sem sé á gamlar sænskar slóðir í sumar með krakkana. Algjör snilldar ferð í alla staði. Dásamlegt þetta land.
Bestu kveðjur til ykkar allra héðan úr rigningunni í Reykjavík.
Knús og kossar, Beta
Hæ hæ. Forvitnin er að sjálfsögðu að drepa mann eins og fyrri daginn. En mikið er annars gott að geta fengið fréttir af ykkur svona "beint". Annars vilja þær bara ekki berast.
Bið að heilsa öllum.
Kveðja Svala
Post a Comment