Thursday, August 21, 2008

Jæja jæja

Já ég fór í bloggsumarfrí en er komin aftur fersk og endurnærð:) Vona að allir hafi haft það fínt í sumar. Við erum allavega búin að hafa það voða fínt. Fengum fullt af gestum og brölluðum ýmislegt skemmtilegt með þeim. Anna og Jónas komu í júní, svo komu Abba og Bogey, næst voru Logi, Bína, Bjartur og Sunna og síðust komu mamma og pabbi og svo Gummi bróðir með Nönnu og Sóleyju. Einhverjar myndir voru teknar en myndavélin er eitthvað orðin gömul og lúin eða allavega batteríin í henni svo ansi oft þegar átti að fara taka myndir stóðum við með batteríslausa myndavél. En einhverjar tókst okkur að taka og þær sjáið þið á myndasíðunni okkar. 

Nú er hins vegar rútínan tekin aftur við. Palli farinn að vinna aftur Óðinn Bragi kominn í leikskólann sinn aftur og Freyja Sif byrjuð í aðlögun í leikskólanum líka. Ég er á biðlista eftir sænskunámskeiði og vonast til að komast inn í september eða október. Helst ekki fyrr en í október samt því við ætlum að skella okkur í heimsókn til Íslands í lok september og fram  í október, svo það myndi henta einstaklega vel ef námskeiðið myndi ekki byrja fyrr en eftir íslandsferðina, en það kemur í ljós.

Já það eru víst fleiri fréttir af okkur sem eflaust einhverjir eiga eftir að heyra. Fjölskyldan er sem sagt að fara að stækka um einn heilann í janúar. Eins og myndirnar sína er nú þó nokkuð farið að sjást á frúnni enda þriðja skiptið sem belgurinn er teygður út með stuttu millibili. Sónarinn er búinn og enginn typpalingur sást þrátt fyrir sterka tilfinningu mína fyrir strák en ljósan vildi nú heldur ekki lofa stelpu því það voru víst mjög slæm skilirði til að greina þarna á milli svo við verðum víst bara að bíða og sjá. líkurnar eru enn 50 á móti 50;) En þar sem við eigum nú eitt af hvoru tagi erum við ekki að stressa okkur á þessu, þetta kemur bara í ljós. Okkur heilsast allavega vel og það er fyrir öllu.

En jæja þá eru helstu fréttir komnar til skila svo ég ætla að fara að snúa mér að ryksugunni, minni bestu vinkonu:)

Þangað til mjög fljótlega 
hafið það rosa gott
knús og kossar
Erla Rut 

5 comments:

Anonymous said...

Til hamingju mín elskulegasta! Frábærar fréttir! Hlakka til að sjá ykkur í næsta mánuði.
Inga Jóns.

Logi Helgu said...

1000 þakkir fyrir okkur í sumar.

Alltaf gott að taka sér bloggfrí...verst hvað maður gerir það oft ;)

Nú, það væri þá aldrei að þið væruð núna að herma eftir okkur og komið með stelpu ;)

Hlökkum til að sjá ykkur.

Páll Sigurgeir Jónasson said...

reyndu svo að skúra líka....kelling.

Bína said...

það tekur því ekki að skúra.... það verður strax skítugt aftur ;O)

Erla Rut Magnúsdóttir said...

ehehehehe....nákvæmlega Bína, var það ekki það sem hann sagði hérna í sumar!!!