Eins og ég sagði í síðasta pósti áttum við von á ömmu Dóru. Hún er komin og farin. Hún fór síðasta sunnudag og var þá búin að vera í tvær vikur hjá okkur. Fyrri vikan hennar var nú ekki mjög spennandi. Við lágum öll í upp og niðurgangi nema amma og Freyja. Svo amma lenti bara í að þrífa upp og niðurganginn og hjúkra sjúkum. Held að sé nú alveg hægt að hugsa sér skemmtilegra frí!!! Seinni vikan var nú mikið betri. Hún byrjaði á vorhátíð leikskólans þar sem Óðinn Bragi tróð upp með gítarspili. Það var sem sagt svona eruovision þema. Hópnum var skipt upp í nokkur atriði og allir völdu sér sitt uppáhaldseurovisionlag og tróðu upp með því. Óðinn Bragi var í hóp með þremur öðrum strákum og völdu þeir sér eurolag svíja frá því í fyrra The Worrying Kind með The Ark. Þeir stóðu þrír mjög stífir fyrir aftan söngvarann, tveir með bassa og einn með gítar. Söngvarinn var minna feiminn, kom fram ber að ofan með svört axlabönd, skikkju og silfur hálsband. Svo hoppaði hann um sviðið í takt við lagið. Þeir voru æðislegir og hátíðin mjög skemmtileg. Svo fórum við með ömmu í Slottskogen að skoða selina og hin dýrin, settumst á kaffihús og fórum á róló. Svo fórum við líka með ömmu í dýragarðinn í Borås á þjóðhátíðardag Svíja. Haukur og Fanney og börn skelltu sér með okkur líka. Mjög skemmtilegt:) Svo var bara farið að líða að heimferð ömmu og við tókum því rólega heima.
Undanfarna viku erum við svo búin að eyða á rólóunum í hverfinu og er það alltaf jafn skemmtilegt. Í gær var pizzakvöld, en helgin er annars óráðin, kemur í ljós hvort gerist ekki eitthvað spennandi:) En á aðfaranótt mánudags kemur amma Maren til okkar og ætlar að vera í tvær vikur. Jónas afi kemur líka en ekki fyrr en í lok vikunnar þegar sjómaðurinn verður kominn í frítúr. Við hlökkum mikið til að fá þau.
En jæja nú er Bangsímon að verða búinn. Ég er að spá í að fara að klæða mig og börnin og gera eitthvað við þennan dag, hvað sem það verður!!! Örugglega eitthvað spennandi eða sjáum til;)
Knús til allra
Erla Rut
2 comments:
Ég ætlaði að fara að spyrja hvort það væri ekki örugglega til mynd af þeim eurovisionfélögum en rakst svo á hana á myndasíðunni, alveg milljón ;)
Hlökkum mikið til að koma aftur í heimsókn...ekki nema mánuður í okkur ;)
Sömuleiðis hlökkum við mikið til að sjá ykkur. Þurfum að láta strákana hittast aðeins á skypinu við tækifæri:)
Post a Comment