Þá er komið sunnudagskvöld og helgin á enda. Eftir að okkur tókst að klæða okkur í gærmorgun lá leiðin út í garð í smá garðvinnu. Það eru tvö beð hérna í sameiginlega garðinu sem voru í algjörri órækt. Við tókum að okkur að hreinsa til í þeim og fórum með margar hjólbörur af ónýtri mold og illgresi upp í skóg. Þau líta nú mun betur út núna en svo þarf bara að kaupa nýja mold og fylla uppí og svo á að sitja einhverja skemmtilega berjarunna sem krakkarnir geta týnt af og smakkað á. Gaman að því:) Svo hóuðum við í íslendingana í hverfinu og grilluðum íslenskt lambakjöt, sem var mjög gott að vanda. Haukur og Fanney komu með börnin og Jóhanna kom með Gizur, Gotti var fjarverandi. Stóru börnin léku úti til örugglega níu en komu þá inn og fengu að horfa á sjónvarp og léku legó svona í bland. Klukkan var orðin hálf eitt þegar partýið var búið og við Óðinn Bragi settumst í stigann að kveðja gestina og á augabragði var ÓB bara sofnaður í stiganum. Alveg búinn á því enda búinn að hamast allan daginn. Í dag eru hins vegar bara búin að vera rólegheit. Löbbuðum aðeins í skóginum í morgun og lögðum okkur í hádeginu:) Kíktum svo við hjá Hauk og Fanney og lentum í vöfflukaffi, ekki slæmt það. Nú sitjum við bara í rólegheitum og bíðum eftir Ömmu Maren. Hún er núna á leiðinni frá Köben með lest. Hún á að koma um tvö leytið í nótt til Gautaborgar og Palli ætlar að skutlast eftir henni svo hún lendi ekki í fulluköllunum á lestarstöðinni um miðja nótt!!!
Best að hætta þessu blaðri
kveð að sinni
ykkar Erla Rut
No comments:
Post a Comment