Palli var að byrja að vinna aftur í dag eftir rúmlega viku frí, svo við gátum aldeilis notið veðursins undanfarna daga og gerðum ýmislegt skemmtilegt saman. Fórum í Lieseberg sem var frekar vinsælt. Haukur og Fanney komu með okkur með börnin sín tvö Hildi og Bjarka. Hildur er 6 ára og Bjarki er tæplega tveggja eins og Freyja. Hildur og óðinn Bragi voru að tapa sér af spenningi og skemmtu sér konunglega. Hin tvö áttu að sofa í upphafi ferðar en Freyja Sif er nú ekki þekkt fyrir að missa af partyi eða annarri skemmtun og reif sig upp stuttu eftir að við komum inní garðinn og var hin hressasta. Var sem sagt sofnuð áður en við fórum inn og svaf í svona 20 mínútur því hún ætlaði greinilega ekki að missa af þessu. Hún fór í eina mjög saklausa hringekju og það var eins og hún væri í rússíbana, brjálað stuð. Óðinn Bragi fór í klessubíla, rússíbana, báta, kastala og fullt af tækjum og var alsæll ætlar sko að fara aftur mjög fljótlega.
Á sunnudaginn fórum við upp að vatni sem er hér bara 10 mín göngufæri frá húsinu. Við tókum með okkur pylsur og bolta og grilluðum og lékum okkur. Haukur og Fanney komu líka með og það var mikið fjör. Við vatnið er lítil strönd og gaman að busla í vatninu á sumrin. Í þetta skiptið létum við þó kvartbuxurnar nægja og skildum sundfötin eftir heima. En svíjarnir eru greinilega meiri hetjur en við allavega voru þó nokrir útí vatninu að leika sér. Þeir eru nú frekar klikkaðir eða kannski er ég bara aumingi!!
Þeir sem hafa heimsótt okkur vita að við erum eiginlega ekki með garð, bara tvo palla sitthvoru meigin við húsið. Þrátt fyrir það erum við búin að planta nokkrum arðbærum plöntum hérna í kringum okkur. Í eldhúspallinn var sagað gat fyrir hallonberjarunnum og einu eplatré. Við endann á húsinu var plantað rifsberjarunnum og svo er pottur á pallahandriðinu með jarðarberjum. Svo er bara að bíða eftir uppskerunni og bjóða í eplapæ og berjadeserta;) Ef einhver er að hugsa um að koma í heimsókn má eiga von á uppskerunni síðsumars. Annars er víst nóg til af þessu í búðinni ef haustið hentar ykkur ekki:)
Já svo var bara mikið um rólóferðir og kvöldmaturinn borðaður á sænskum tíma milli 4 og 5 í sólinni. Bíðum eftir næsta fríi hjá fyrirvinnunni. En það verður víst einhver að vinna fyrir hveitinu í kökurnar;)
Jæja ég er alveg að stikkna er að spá í að fara inn í léttari buxur og hengja svo upp úr þvottavélinni úti.
Bið að heilsa í bili
knús og kossar úr Gautaborg
8 comments:
hefur freyja alltaf verið svona "powernap" manneskja? Ég er að verða rugluð á syni mínum sem sefur ekki nema í örstuttum dúrum allan daginn.. oftast sefur hann innan við 2 klst yfir daginn.. og mamman kemur akkúrat engu í verk því minn maður kann illa við að vera án skemmtiatriða.
við erum alveg á leiðinni í eplapæju.. spurning um júní eða ágúst myndi ég segja :)
er dagur á tímabilinu 9-16. ágúst haust í Svíþjóð? :-)
Vonandi hittum við á svona gott veður þegar við kíkjum til ykkar...hér sést ekki til sólar fyrir skýjum og rigningu...og reyndar sé ég ekki sólina fyrir skjánum ef hún væri að sýna sig hér ;)
Logi! Hvað ertu eiginlega með stóran skjá? ;)
kannski er sólin bara svona lítil þarna norðurfrá...
Hæbb, bara að kvitta og láta vita að með framtaki Hörpu hef ég fundið bloggið þitt..
Gaman að fylgjast með.
hæhæ elskan, þetta var nú ekki amaleg síða að lenda inn á. Ég á sko eftir að skoða þig oft hérna:)
bið að heilsa fallegu fjölskyldu þinni,
kveðja, Ásta ingibjörg og co
Hér er líka búið að vera ekta sumarveður í dag örugglega 30 siga hiti á sólpallinum sko :-)
það er spáð blíðu eitthvað fram eftir vikunni hér á Seyðis.
Okkur Billu langar mikið að heimsækja ykkur veit ekki hvort verður af því í sumar . Ég og Siggi erum að fara til Filippseyja í haust þ.e. í sept.
Knús og kossar til ykkar allra
Kv. Gulla móða
Post a Comment