Tuesday, May 13, 2008

Gullmolar frá gullmola

Þessa dagana fljúga gullmolarnir úr munni sonar míns. Þeir feðgar voru að spjalla um daginn og Palli segir: er þetta bubbi byggir og hrappur? Þá segir Óðinn Bragi: já þetta er hrappur FUGLASKRÆFA.

Við höfum haft það fyrir reglu í vetur að fara á foreldramorgna í kirkjunni á föstudögum. Á leiðinni inní kirkjuna löbbum við meðfram kirkjugarðinum. Í eitt skiptið á leiðinni meðfram kirkjugarðinum er hann mjög hugsi, horfir í kringum sig og segir svo: deyjarar eru góðir!! Ég endurtek DEYJARAR?!!! Hann: já þeir sem setja dána fólkið oní jörðina:)


Eitt enn. Hann fékk niðurgang um daginn og ég var að útskýra það fyrir honum að hann yrði að prumpa í klósettið en ekki í brókina því það gæti komið eitthvað með því. Svo situr hann á klósettinu og er að spjalla við pabba sinn og segir svo: mamma heldur að ég sé með NIÐURFALL í maganum!!!

Nokkrum dögum seinna þegar niðurgangurinn var nú yfirstaðinn hleypur hann á klósettið og kemur svo mjög hreykinn til baka: mamma ég fór að prumpa í klósettið var það ekki gott hjá mér??


Annars er allt við það sama. Örlítið kólnandi veður reyndar en mjög fínt engu að síður. 


Ég þakka öll kommentin en spyr hvernig farið þið að þessu? ég get nebblega ekki kommentað sjálf á síðuna mína!! hahaha

skilst þetta sé eitthvað stillingaratriði sem ég þarf að redda.


Palli var að bæta apríl myndum á síðuna okkar svo endilega kíkiði;)


Bið annars að heilsa í bili

See you later aligater

4 comments:

Anonymous said...

Hæ Erla það er algjört æði að geta fylgst með ykkur hér . Ég er heima með flensu, fór í vinnu í morgun en var komin heim um kl.11:00 var líka veik í gær. Meira vesinið og ég sem er að fara til Rvk í dag.

Ég gat loksins kommenterað eftir mikið erfiði með því að haka í Anonymous hér fyrir neðan.

Kv. frá Seyðis
Gulla móða

Anonymous said...

Hæ hó kæra mágkona (og þið öll)!
Gaman að fylgjast með ykkur svona í gegnum veraldarvefinn... Sjálf hangi ég náttúrulega heima allan daginn en ekki hafði mér nú hugkvæmst að fara að blogga.
Kossar og knús á línuna!
Miðgarðsormarnir

Anonymous said...

Hæ elsku Erla og familie! Mikið öfunda ég ykkur í sólinni í Svíþjóð. Var einmitt í DK um daginn að taka við húsinu okkar og langaði ekkert heim úr blíðunni þar. Við flytjum sem sagt í sept. og þá er stutt að kíkja til ykkar :)
Frábært framtak hjá þér að blogga - nauðsynlegt að fá að fylgjast með ykkur. Sé að sonurinn er að slá í gegn með kommentum - kannast við það frá dóttur minni sem segir að frændi sinn sé með "ánamaðka" fyrir fiski því hann er með fiskiofnæmi.
Kossar og knús úr þokunni í firðinum, sem léttir vonandi fljótt ;)

Anonymous said...

hahahah grímur Þór er nýfarinn að segja niðurgangur en hann sagði einmitt alltaf niðurfall:)
svona molar koma frá ekta gullmolum
ástan