Friday, May 23, 2008

Föstudagskvöld

Þeir eru í ansi föstum skorðum föstudagarnir hjá okkur. Byrjuðum daginn á að fara í ræktina, svo fórum við á foreldramorgun í kirkjunni og lékum við krakkana þar. Þegar það var búið fórum við heim í hádegismat og Freyja fór að leggja sig. Á meðan að Freyja lagði sig bökuðum við Óðinn Bragi köku, svo fórum við út á pall að sleikja sólina þangað til hún vaknaði. Þá fengum við okkur köku á pallinum og fórum svo á róló og lékum okkur þar þangað til að það var kominn tími til að fara heim að gera pizzu en það er alveg heilagur siður á föstudögum og þróunin orðin þannig að við erum að spá í að fara framleiða hahaha. Eftir pizzuna fórum við með ís í kjallarann og horfðum á Andrés Önd. Nú eru börnin hins vegar komin í rúmið og klukkan ekki orðin níu svo ég ætla að koma mér núna mjög vel fyrir í sófanum og athuga hvort ég finn ekki eitthvað skemmtilegt í imbanum. Mjög svo týpískur föstudagur og afar notalegur:)

Svo er náttúrulega eurovisionkvöld á morgun og gríðarleg stemning og við auðvitað getum kosið Ísland og látum ekki á okkur standa með það:) Á sunnudaginn ætlar svo Amma Dóra að koma til okkar og vera hjá okkur í rólegheitum í tvær vikur. Það verður voða notalegt og við hlökkum mikið til:)

Áður en ég sný mér að imbanum verð ég að segja ykkur frá kommenti vikunnar frá syni mínum. Við vorum að labba fram hjá leikskólanum hans einhvern seinnipartinn og hann sér að það er verið að sækja vinkonu sína. 
Hann kallar á eftir mér: Annie er að fara heim sé ég
Ég: hvað segirðu?
ÓB: ég sé að Annie er að fara heim. Ég sé það með mínum trúandi augum!!
Ég: HA hvað segirðu?
ÓB: Ég sé það með mínum trúandi augum!!
Ég: jaahá.
Veit ekki hvort þetta er afbökun á máltækinu: ég trúi ekki mínum eigin augum, eða hvaðan þetta kemur. Veit ekki hvernig maður svarar svona, sneri mér bara undan og reyndi að bæla niður hláturinn:)

Jæja þá ætla ég að snúa mér að Desperate Housewives þarf að vinna upp heila þrjá þætti svo ég kveð að sinni.
Bestu kveðjur
Erla Rut

7 comments:

Anonymous said...

Hæ hæ Erla mín!
Takk fyrir að láta mig vita af blogginu:o) Er búin að kíkja einu sinni en gleymdi að kvitta
Knús og kveðjur
Selja

Anonymous said...

Erla mín,
enn ein tilraunin til að kvitta... en gaman að heyra í ykkur og sjá um helgina og vona að þið hafið það gott með mömmu þinni næstu vikurnar.
bestu kveðjur, Árný frænka

Anonymous said...

Frábært, það tókst loksin :-) árný

Anonymous said...

Hæ Erla Rut og fjölskylda. Það er greinilega alltaf gaman hjá ykkur, maður getur lesið um það hér á netinu, ótrúlegt!!! Biðjum rosalega vel að heilsa ykkur og Óðni Braga og Freyju Sif. Njótið góða veðursins. Bestu kveðjur.
Helga Kristín, Árni, Tristan Ingi, Alexnader Helgi og Agla Karitas

Hrönn Sigurðardóttir said...

Hæ mús, gaman að sjá að þú ert farin að blogga, æðislegt að fá að fylgjast með ykkur, Knús og kossar Hrönn.

Anonymous said...

sumarkveðja til fjölskyldunnar :-)
kveðja, Inga Jóns.

Ásdís Rósa said...

Hahaha litli snillingur! Vona að þið hafið það ótrúlega huggulegt með Ömmu Dóru í góða veðrinu. Vildi ég gæti beamað okkur Jón Steinar yfir til þín í smá ís, sólbað og spjall :)