Rosalega líður tíminn hratt. Þetta var hins vegar hin ágætasta helgi. Á föstudagskvöldið var íslendingaparty. Í partýum hér fylgja börnin bara með því það hefur enginn barnapössun svo sumir koma og stoppa stutt og koma svo börnunum heim í rúm. Aðrir eins og við koma og stoppa nánast til miðnættis og horfa á börnin sín ganga í svefni í tvo tíma áður en haldið er heim:) Börnunum finnst þetta samt alveg hrikalega skemmtilegt og göslast áfram í leik og gleði. Það var orðið frekar fyndið að fylgjast með Freyju Sif ráfa um og finna sér eitthvað til dundurs. Hún var nánast farin að vagga þegar hún gekk um en reyndi að bera sig vel og þykjast vera ekki sybbin fyrir fimmaur. Óðinn Bragi bar sig líka vel en rotaðist um leið og hann lagði hausinn á koddann um miðnætti. Svo tókum við því bara rólega á laugardeginum. Bökuðum köku og höfðum það kósý. Grilluðum um kvöldið og fórum svo í kjallarann með ís og spólu í tækið, eða þannig!! Virkilega huggó:)
Í dag sunnudag fór Óðinn Bragi í afmæli til vinar síns í leikskólanum. Það var allri deildinni boðið svo þetta voru um tuttugu börn. Við Freyja fórum með inn og ætluðum að stoppa í smá stund en vorum frá upphafi til enda. Lenti ósjálfrátt í smá sjálfboðavinnu, var farin að reima skó og aðstoða við klósettferðir áður en ég vissi af. Sem var bara mjög gaman og veitti ekkert af auka höndum og augum til að fylgjast með öllu þessu liði. Það var farið út í ratleik og fleira grillaðar pylsur og borðaður ís. Svo endaði afmælið eins og öll sænsk afmæli og veislur á fiskileiknum. Þá veiða allir einn nammipoka og fara svo heim. Minn maður var mjög sáttur við daginn enda búið að bíða eftir þessu í næstum því mánuð.
Svo er bara ný vika fram undan. Spurning hvað hún hefur uppá að bjóða??
Meira seinna
Erla Perla
1 comment:
hæ hæ sætan mín! yndislegt að fá fréttir af ykkur. Svefnsófinn er kominn í hús og hann var prufurkeyrður í nótt.
Knús og kossar, Þóra Kristín
Post a Comment