Friday, May 23, 2008
Föstudagskvöld
Sunday, May 18, 2008
Enn ein helgin liðin.
Tuesday, May 13, 2008
Gullmolar frá gullmola
Þessa dagana fljúga gullmolarnir úr munni sonar míns. Þeir feðgar voru að spjalla um daginn og Palli segir: er þetta bubbi byggir og hrappur? Þá segir Óðinn Bragi: já þetta er hrappur FUGLASKRÆFA.
Við höfum haft það fyrir reglu í vetur að fara á foreldramorgna í kirkjunni á föstudögum. Á leiðinni inní kirkjuna löbbum við meðfram kirkjugarðinum. Í eitt skiptið á leiðinni meðfram kirkjugarðinum er hann mjög hugsi, horfir í kringum sig og segir svo: deyjarar eru góðir!! Ég endurtek DEYJARAR?!!! Hann: já þeir sem setja dána fólkið oní jörðina:)
Eitt enn. Hann fékk niðurgang um daginn og ég var að útskýra það fyrir honum að hann yrði að prumpa í klósettið en ekki í brókina því það gæti komið eitthvað með því. Svo situr hann á klósettinu og er að spjalla við pabba sinn og segir svo: mamma heldur að ég sé með NIÐURFALL í maganum!!!
Nokkrum dögum seinna þegar niðurgangurinn var nú yfirstaðinn hleypur hann á klósettið og kemur svo mjög hreykinn til baka: mamma ég fór að prumpa í klósettið var það ekki gott hjá mér??
Annars er allt við það sama. Örlítið kólnandi veður reyndar en mjög fínt engu að síður.
Ég þakka öll kommentin en spyr hvernig farið þið að þessu? ég get nebblega ekki kommentað sjálf á síðuna mína!! hahaha
skilst þetta sé eitthvað stillingaratriði sem ég þarf að redda.
Palli var að bæta apríl myndum á síðuna okkar svo endilega kíkiði;)
Bið annars að heilsa í bili
See you later aligater