Ég held að það viti það nú allir að ég bý með fjölskyldunni í Svíþjóð núna. Hér er ég búin að vera heimavinnandi húsmóðir í eitt ár!! Það er bara búið að vera fínt. Nóg að gera að koma okkur fyrir í húsinu og aðlagast hinu og þessu í nýja landinu. Óðinn Bragi byrjaði á leikskóla síðasta haust og var smá stund að aðlagast en finnst rosa gaman núna og á orðið fullt af vinum þar. Einn sem er svona besti vinur og þeir fengu að hittast á sunnudaginn síðasta heima hjá vininum að leika saman og það var þvílíkt sport. Var í þrjá tíma og kom alsæll heim á eftir. Freyja Sif er búin að fá leikskólapláss í haust en hún hefur hingað til bara verið heima hjá mömmu. Við Freyja höfum nú brallað ýmislegt, mikið verið í því að halda einhverjum mat að dömunni þar sem hún þykir ekki stækka nóg eða þyngjast. Þar af leiðandi fáum við okkur samkvæmt læknisráði einn góðann súkkulaðimola eftir hádegismatinn í góðri trú um að kúrfan komi betur út í næstu skoðun, allavega fyrir Freyju, kúrfa móðurinnar er sem betur fer ekki mæld. En sem mótvægi á móti súkkulaðimolanum í hádeginu þá höfum við gert það að rútínu að fara í ræktina á morgnana. Börnin fara í barnapössun og mamman fer og púlar. Eftir ræktina fer svo Óðinn Bragi þrisvar í viku í leikskólann. Hann er sem sagt þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag í leikskólanum og svo fær hann fjögra daga helgarfrí, því mömmur sem eru heima með yngri börn fá ekki meira en 15 tíma fyrir eldri börnin í leikskólanum, og þrátt fyrir að vera orðinn mjög ánægður í leikskólanum er hann samt alltaf jafn feginn helgarfríinu þessi elska. Svo förum við á föstudögum á mömmumorgna í kirkjunni sem þeim finnst mjög gaman, þar er sungið borðað og leikið. Svo er Pizzakvöld um kvöldið. Vikurútínan svona nokkuð í föstum skorðum.
En nú er vorið heldur betur komið með rúmlega 20 stiga hita og sól. Það eru sko allir mjög glaðir með það og líf og fjör á róló alltaf núna. Svo það er bara gaman að vera til. Palli er í fríi þessa viku og við héldum upp á það í dag og spókuðum okkur í bænum og keyptum okkur ís.
Svo við segjum bara gleðilegt sumar allir:)
Nú er ég búin að stikkla á stóru um venjur okkar hér í Gautaborg en það er frá ansi mörgu að segja eftir heilt ár en þið fáið bara að heyra af því smátt og smátt.
Vonandi verð ég svo dugleg að blogga og þið að lesa;)
Bið að heilsa í bili
knús og kram yfir hafið og um allan heim
Erla Rut mega bloggari;)
5 comments:
Gaman að fá fréttir af ykkur hérna á internetinu ;)
Kveðjur frá Íslandi.
Haaaaalelúja segi ég ! Frábært framtak elsku Erla Rut, ég verð þinn dyggasti lesandi :)
Loksins, loksins :-)
Mikið verður gaman að lesa og ég lofa því ég ég mun kommenta mikið! Kær kveðja, Inga J.
já sko! núna veistu hvað það er gaman að fá komment á síðuna sína *HIIIIINT*
ég fékk oftast suðusúkkulaði hjá ömmu ef ég var dugleg að borða kartöflur með smjöri (eða smjör með kartöflum) í "fituninni" hér í den. Maður var svo vitlaus að maður fattaði aldrei trixið.. þeas BORÐA og SVO nammi.
já og svo var líka rúgbrauð með smjöri og miklum sykri.
Hiiiint taken. Skal reyna að standa mig. Setti einn inná þig áðan;)
Post a Comment